The American Comedy Awards The American Comedy Awards verða haldin 25 apríl nk. og var verið að tilkynna tilnefningarnar. Persónulega hef ég aldrei heyrt um þessi verðlaun en þetta eru víst eitthvað rosa BIG þarna úti í Bandaríkjunum.
Friends fékk nokkrar tilnefningar og mig langaði bara að segja frá þeim.

Fyndnasta aukaleikkona í sjónvarpsþáttum :
Jennifer Aniston
Lisa Kudrow
(ég skil það nú reyndar ekki alveg, eru þær ekki í aðalhlutverkum í þáttunum ?)

Fyndnasta kona í gestahlutverki í sjónvarpsþáttum :
Reese Witherspoon (lék systur hennar Rachel)

Fyndnasti maður í gestahlutverki í sjónvarpsþáttum :
Bruce Willis

Ég held að Bruce Willis sé alveg pottþéttur með verðlaunin í sínum flokki en fyndnasta aukaleikkonan……. með Lisu og Jennifer er Megan Mullally tilnefnd fyrir Will&Grace.
Friends hefur aldrei unnið American Comedy Award áður, en þetta verður 15 skiptið sem þau eru haldin.