Joey Tribbiani (ekki Rachel) Á hverja Friends síðu sem maður fer á er Biography um hvern leikara. Ég ákvað að skrifa svoleiðis um Rachel og Joey. Biography-ið með Rachel er búið að koma (með smá ruglingi) en nú kemur um Joey:

Joey Tribbiani:
Joey er þessi treggáfaði af strákunum. Phoebe líklega af stelpunum. Hann vinnur sem leikari en er atvinnulaus eins og er. Hann varð frægur og ríkur þegar hann lék Dr. Ramoray í Days of our Lives. Hann er dáldið slow en góður vinur. Hann býr á móti Monicu og hefur verið herbergisfélagi með Chandler, Janine, Rachel og Phoebe. Við getum sagt þrennt um Joey:
HANN ELSKAR PIZZUR ! HANN ELSKAR THE KNICKS ! HANN ER KVENNABÓSI !

Matt LeBlanc:
Matt fæddist 25 júlí, 1967 í Massachusetts. Hann hafði ekki áhuga á leik sem krakki. Hann hafði áhuga á mótorhjólum og þegar hann fékk fyrsta mótorhjólið sitt fór hann að taka þátt í ýmsum áhugamanna keppnum vonandi að hann yrði professional. Mamma hans neyddi hann til að finna annan starfsferil. Eftir að útskrifast úr framhaldsskóla flutti hann til New York. Hann fékk hlutverk í auglýsingum eins og Doritos, Levi´s, Coca cola. Árið 1988 fór hann í leiklistaskóla og innan árs fékk hann hlutverk í þáttunum “TV 101” og flutti til Los Angeles. Árið 1993 fékk hann hlutverk Joey í hinum frábæru sjónvarpsþáttum FRIENDS.