Fyndna Phoebe Vegna þess að Phoebe er fyndnasta perónan í Friends og var að leika í myndinni Lucky Numbers með John Travolta sem kemur bráðum ti Íslands ætla ég að skrifa smá um hana.

Phoebe Bouffey, kölluð Pheebs, vinnur sem nuddari. Hún er 32 ára og á afmæli 23 febrúar.

Fjölskylda:
Tvíburasystir sem heitir Ursula sem er gengilbeina. Bróðir sem heitir Frank Jr og hálfbróðir sem heitir Carl. Mamma hennar Phoebe framdi sjálfsmorð þegar Phoebe var 14 ára. Stjúpfaðir hennar er í fangelsi og alvöru pabbi hennar er lyfjafræðingur sem yfirgaf mömmu hennar Phoebe og seinni eginkona sína. Phoebe bjó hjá ömmu sinni, Frances, sem var leigubílstjóri en er dáinn.

Gæludýr:
Köttur sem hún hélt að væri mamma sín.

Kærastar :
David – the scientist guy (kom aftur í seinasta þætti), Roger, Nokululu N´K´A-A (sem við sáum aldrei), Duncan, Ryan –sjóliðinn, Malcolm, Robert, Sergei, Vince – slökkviliðsmaður, Jason – kennarinn, Larry, Gary – lögreglumaðurinn.

EITTHVAÐ SEM ALLIR EIGA AÐ VITA UM PHOEBE :
Phoebe gerði tónlistarmyndband við lagið Smelly Cat en það var hljóðsett með annarri rödd án hennar samþykkis. Hvert skipti sem Phoebe fer til tannlæknis deyr einhver. Hún var staðgengilsmóðir fyrir þríbura bróðir síns. Phoebe bjó hjá Monicu á undan Rachel en fannst hún of hreinlát og ákvað að búa hjá ömmu sinni. Hatar PBS vegna vegna þess að þegar hún skrifaði til Sesame Street svöruðu þeir henni aldrei, sendu henni bara lyklakippu. “All I got was a lousy key chain! And by that time I was living in a box” I didn´t have keys!” Henni finnst erfitt að muna símanúmerið sitt vegna þess að, eins og hún segir, “I never call myself”. Hún er grænmetisæta. Borðar ekkert sem hefur andlit. Hún þóttist einu sinni vera umboðsmaður Joey. Phoebe elskar grænmetispizzu. Uppástungur Phoebe fyrir nafn á barni bróður síns voru Cougar (púma, fjallaljón), Exxon og Chanoey (Chandler og Joey). En hún endaði upp með að velja nafnið Chandler. Phoebe gat ekki farið með í London-ferðina vegna þess að hún var ófrísk.

Síðan til viðbóta við þessar upplýsingar ætla ég að bæta við Chandler og Joey boðskap………..
Við ættum að endurtaka þetta við tækifæri þýðir þú munt aldrei sjá mig nakinn.
Þetta er ekki þér að kenna þýðir þetta ER þér að kenna
Ég held að við ættum að byrja með öðru fólki þýðir ha ha ég hef þegar gert það.