Geimverur sækja jarðvegssýni Rússneskir embættismenn segja að undarlegir hringir, sem mynduðust á kornakri í afskekktu landbúnaðarhéraði í suðurhluta Rússlands, sýni að geimverur hafi komið til jarðar til að taka sýni úr jarðveginum. Fréttastofan Itar-Tass sagði að fimm samliggjandi hringir hefðu myndast á hveitiakri í Krasnodar-héraði. Svipaðir hringir hefðu einnig birst fyrir fjórum árum.
“Embættismenn í almannavarnanefnd héraðsins segja að þetta bendi til þess að geimverur hafi komið aftur til jarðar til að sækja fleiri jarðvegssýni,” sagði Tass.
Samskonar hringir mynduðust á ökrum í Englandi á ofanverðum síðasta áratug en almennt var talið að þeir væru af völdum hrekkjalóma.
Mbl.is segir frá
Ég held persónulega að þetta sé bull, af hverju ættu þeir að taka hringi? Af hverju ekki bara grafa holu!
Just ask yourself: WWCD!