Weebl og Bíbí II Ókei…
sko ég veit ekkert hvor er hvað… ég veit bara að Weebl er stærri ;);)
Skomm ég átti Weebl í einn eða tvo daga en Bíbí í sirka 10 daga ;) ég og Bíbí áttum að koma í DV :o
Nú ætla ég að segja ykkur söguna um þá :)

Einn dag kom bróðir minn og vinur hans heim með tvo andarunga sem þeir skírðu strax Weebl og Bob. Ég kom út í garð og sá þá og langaði strax að við fengjum að eiga þá … Hjalta vini bræðra minna langaði að eiga einn … ég vildi það ekki og ég held að foreldrar hans hafi ekki leift það af því að hann fékk ekki unga >:D
Við létum þá í fuglabúr sem að Bíbí, fyrrverand gári fjölskyldunnar átti þegar hann lifði…
Svo kom ég heim úr skólanum og hljóp upp og sá þá að Bob var þar bara … ég lét Bob færa sig og þar lá Weebl dáinn :(
Við höldum að við vitum af hverju hann dó og það var útaf því að hann klifraði alltaf upp rimlana og datt svo alltaf :S Bob klifraði ekki af því hann var lítill og hræddur :(
Fljótt skírði ég Bob Ost af því að hann elskaði ost :Þ
Við létum hann í gráann kassa með fullt af grasi og fleiru í ;)
hann reyndi oft að hoppa uppúr kassanum en gat það ekki útaf því að hann var svo lítill og gat ekki hoppað hátt…
Hann var skírður Bob Ostur út af því að Ragga (einum af bróður mínum) langaði að skíra hann Bob en mig langaði að skíra hann Ost…
Ég man ekki hvenær en hann var skírður Bíbí II á endanum en Raggi vissi ekki af því útaf því að hann kom eiginlega aldrei niður…
En ég ætla að segja ykkur frá mesta og fyndnasta ferðalagi hans…
Hann var settur inní bílskúr og allir fóru að sofa…
Þegar við vöknuðum eða eitthvað þá leit ég í kassann inní bílskúr og Bob var ekki þar (hann hét Bob Ostur þá) :(
ég var skíthrædd og hélt að hann væri farinn :(
ég heyrði tístið í honum og líka fótatakið hans…
ég fattaði að hann væri þarna inni :o
ég kallaði á einn bróður minn sem heitir Hannes og lét hann hjálpa mér að finna hann en án árangurs … við fundum hann ekki… en svo heyrðum við í honum inní vegnum :o
þegar pabbi kom heim létum við hann kíkja á þetta…
það vara skápur opinn og inní skápnum var gat inní vegginn og Bob hlaut að hafa farið þangað…
það var mjög erfitt að ná honum og á endanum þurfti pabbi að rífa upp eina hlið á skápnum og ég átti að teygja mig í hann…
ég náði næsym þannig að við prófuðum að kalla ,,Bíbí“ , ,,Ostur” en svo kölluðum við ,,Bob" á fullu og hann labbaði til okkar krúttið … ég tók að hann og knúsaði og kyssti (K)(L)(K)
hann var alveg skíthræddur (ekki við mig sko ;))

en ég man ekkert meira af greyunum nema að Bíbí II fannst mjög gott að lúlla í hálsarkotinu á manni :)

Kv. Marta (L)

P.S. sendi mynd af Bíbí II með húfu seinna :)