ég geri nú ráð fyrir því að einhver ykkar séu með þessa hluti á hreinu, en nú er sá árstími þegar smáfuglarnir þurfa á aðstoð okkar að halda. :)

þrestir og starar (ekki starrar!) ELSKA steiktan lauk, brytjuð epli og rúsínur. geri ráð fyrir að aðrir smáfuglar vilji þetta líka en á svölunum hjá mér eru hátt í 100 fastagestir, starar og þrestir. :) og reyndar eru svartþrestir niðri í garði en þeir koma ekki á svalirnar.

ef þið eruð með einhverjar tillögur að einhverju öðru sem smáfuglunum finnst gott, endilega deila því!