Jæja, þá drattaðist ég loksins til að uploada videoi af páfagauknum mínum inná youtube.. :)

Hún er af tegundinni African Grey (congo) og er að verða 2 ára í júní minnir mig.. Þetta myndband er dálítið gamalt og þarna er hún að segja voða fátt annað en halló, en hún dansar eitthvað og trallar í leiðinni. Hún hefur síðan þá lært að segja alveg helling í viðbót og vonandi kemur annað vídeó einhverntímann þar sem hún er svona aðeins fjölbreyttri…

Þetta er tekið upp á stafræna ljósmyndavél þess vegna er suð og léleg gæði.. (mæli með því að þið hækkið bara vel til að heyra eitthvað..)

Allaveganna, Smelltu hér til að horfa á það ;)