Kvöldið.

Ég hef lengi átt páfagauk, og á nú gára númer 2. Þeir hafa alltaf verið einir en nú er ég með annan í pössun og ákvað að hleypa þeim báðum út í einu í kvöld. Minn er frekar ungur og vitlaus, meðan hinn er frekar gamall, og vitlaus… Þeir eru loksins farnir að leika sér saman en ég veit bara ekki hvort þeir eru að slást eða leika sér. Minn gerir sig voða stóran og kroppar í hinn á fullu, og það er eins og þeir séu að… kyssast :S Þeir virðast skemmta sér en samt virðist sá gamli stundum hreinlega vera að forða sér. Hvað haldið þið?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _