Hæ ég ætla að skrifa eitthvað smá um fuglinn minn.

Gárinn minn er kvenkins og heitir Tweety af því að hún er allveg gul. Hún verður 2gja ára 23.sept.
Hún er mjög gæf og ef hún er með læti þá segir maður bara “uss,, og þá hefur hún hljóð, hún fer líka alltaf sjálf inn í búrið og fer líka inn ef maður segir ”inn,,. Hún elskar að vera hjá manni, uppáhalds leikurinn hennar er að naga skartgripi.
Oftast þegar hún heyrir einhverja tónlist fer hún að syngja með. Uppáhalds nammið hennar er svona hunangsstöng, hún klárar svoleiðis stöng á hálftíma.
hún er með fullt af dóti í búrinu er hún sefur alltaf ofaná róluni.
Hún elskar að fara í bað og ef baðið er þá sefur hún alltaf á því með stélið ofaní.
Þegar ég var með sítt hár þá flaug hún alltaf á hausinn á mér og rendi sér niður á hárinu, svo þegar ég lét klippa mig stutt þá fór Tweety á hausinn á mér og ætlaði að renna sér enn þá datt hún bara niður og var geðveikt hissa.