Jæja, hið ótrúlega gerðist. Hundgamla finkukerlingin og ungi spræki finkukarlinn eignuðust unga. 2 ungar og eitt egg. Ég hef ekkert vit á þessu.
Hvað á ég að gera? Mér sýnist annar unginn dauður, á ég að fjarlægja hann úr búrinu?
Hvernig mat á ég að gefa þeim? Á ég að gera eitthvað yfirleitt eða er þetta allt undir þeim hjónakornum komið? Hve lengi verður unginn í hreiðrinu?
Hvernig hitastig ætti að vera?

Ég þarf hjálp með þetta sem fyrst og því leita ég hjálpar bæði hérna og á fuglaspjallinu.

Hjálp!