Jæja, ég á u.þ.b. 12-13 ára gári sem er því miður eflaust að syngja sitt seinasta, mig vantar ráð við því hvernig ég get haft þessi seinustu 2-3 ár góð og “skemmtileg”.
Ég hef ekki verið með hann öll þessi ár þannig að ég er ekki “reyndur” fuglamaður. Og vantar mikla hjálp.
En á þessum stutta tíma hef ég myndað dágott samband við hann og hann treystir mér nokk vel. Þannig að það er allt gott og blessað í þeirri deild en vantar ýmis góð ráð…

Vinsamlegast afsakið hvað þetta er mikið en góð ráð eru afar vel tekið við :)<br><br>Kv. Ungur nemi