Sunnudaginn 27. apríl birtist ástargaukur í porti notaðra bíla hjá Toyota í Kópavogi (ekið inn frá Dalbrekku). Eftir nokkurt flaut og japl og jaml lenti hann á höfðinu á mér og fékk far inn á skrifstofu. Fuglinn er særður á fæti og hefur greinilega lent í hremmingum. Þeir sem kunna að hafa tínt gulum ástargauk á þessum degi (efast um að svona fugl mundi lifa af nóttina hér) eru beðnir um að hafa samband. Það er mynd af honum á vefsíðunni okkar http://www.ikon.is