Pollýanna Pikkólína Sæl og blessuð..
Ég ætla að segja ykkur frá fuglinum mínum henni Pollýönnu.

Pollý er gul með svartar doppur á bakinu og græna flekki á maganum! Hún er 2 ára gömul og elskar Pepsi flöskur og hleypur á eftir theim útum allt gólf..Pollýanna heitir mjög sjaldgæfu nafni Pollýanna Pikkólína Tweety Nördíbördí! Ég er samt ekki viss hvort hún er stelpa eða strákur thví að goggurinn er tvílitur… Hún á bara meðalstórt búr sem er frá Ferplast og thað er fullt af dóti.. Tweety er í mestu uppáhaldi hjá henni og hún á 2 litla Tweety-a sem hún er alltaf að henda í gólfið…. Pollýanna er mjög frek en samt gæf og vill vera hjá manni..En leyfir manni alls ekki að klappa sér á bakinu né hausnum.. Hún er ekki handmötuð. Ef aðrir fuglar koma í heimsókn eins og fugl sem vinkona mín á thá fer hún í fýlu og vill ekkert koma út úr búrinu fyrr en fuglinn er farinn..Hún hefur líka thann hæfileika að geta talað hún segir Blessaður, asni :$ og flautar allskonar blístur sem við fjölskyldan höfum verið að kenna henni.

Vona að thið hafið gaman af thessu!