Alex í leit að sálufélaga! Jæja þá er hann alex að koma aftur til mín! Hann fór í dýraríkið í umboðssölu en seldist ekki, fann sér kærustu og það verður sárt að taka þau í sundur. Hann er alveg yndislegur fugl og veit fátt betra en að kúra, ég ætla að taka hann til mín og sjá hvernig gengur að finna handa honum nýtt heimili.

Hann er 1 árs jandaya, influttur frá Hollandi og algjör engill! Hann vill fá að ráða sjálfur hvenær hann kemur úr búrinu en hangir á öxlunum á fólki alveg óhræddur. Hann er pínu feiminn og vill þekkja þig ágætlega áður en hann kemur til þín, en hlýðir samt oftast.

Hann þarf eiganda sem hefur tíma fyrir hann og hann vill helst vera eini fuglinn (nema nottla hann finni engil sem hefur áhuga á fuglarækt og kaupir kærustuna líka!!!) Honum finnst korn einstaklega góð og hefur gaman af góðri bíó mynd í rólegri stemmingu hehe!

Hann er vængstífður og mjög heilbrigður og fallegur. Kærastan hans er til sölu í dýraríkinu, en ég get ekki keypt hana og þau geta ekki haft hann þannig að það verður að aðskilja þau.

Ég hafði hugsað mér að lækka verðið í 80þús (eru til sölu á svona 120-130 oftast í dýrabúðum).

Alex vantar sálufélaga sem vill eyða með honum ævinni.

Uppl fást í síma 8668884 og baraeg_2001