klikkaðir páfagaukar! Ég var staddur út í dýragarði eitthverstaðar út á landi og þar voru allskonar dýr..síðan sá ég allt í einu grænan (ekkert of stóran)páfagauk og ég rétti höndina inn í búrið og hann kom strax á höndina á mér og trítlaði bara upp öxlina á mér..síðan skeit hann á bakið á mér og ég fékk kast og grýtti honum inn og snerti hann ekki aftur..síðan fór ég inn í gróðurhús (svokallað) og sá þar tvo svipaða í viðbót nema þeir voru hvítir og annar þeirra stökk á ermina á mér og hann klifraði upp öxlina á mér og ég var tilbúinn að hálsbrjóta þann næsta sem myndi gera slíkt hið sama..en allt í einu þá vex einhver djöfuls kambur á honum og hann byrjar að hoppa á mér,ég var bara “what the fuck” og strunsaði fljótlega út..


..síðan labbaði ég innar og þar voru tveir til viðbótar,risastórir frá Amazon frumskóginum(einn grænn og hinn blár,ófleygir) og það stóð á skiltinu að það mætti ekki koma nálægt þeim því þeir geta snappað puttann þinn í sundur..en ég var í leðurfrakka þannig að ég meikaði þetta alveg og rétti út höndina og rauði trítlaði samstundis upp höndina á mér,nú fyrst var ég orðinn pínu stressaður,ég skildi bláa eftir(tók hann aldrei upp,leist ekkert á hann)og ég og rauði vinur minn voru bara orðnir fínir vinir þangað til blái fór að blaka vængjunum og skaut sér á mig af afbrýðisemi og ég missti rauða gaukinn og þeir voru bara á jörðinni og blakandi vængjunum út um allt,öskrandi á sinn hátt og hræðandi fólkið en síðan kom vinkona mín með prik og tók þá upp setti þá aftur á sinn stað en jesus christ hvað þetta er klikkuð kvikindi mar!


Væri ekkert á móti því að eiga einn taminn og hlýðinn páfagauk en þeir eru bara svo andskoti dýrir..
My name is Earnie Douglas but my friends call me Chip