Ég er búin að eiga mjög marga páfagauka í gegnum árin.
Mér er samt minnistæðust ein gul sem var svo á endanum víst einn gulur :o)

En hún er einn klikkaðasti fugl sem að ég hef átt.
Það var spegill í búrinu hennar og þegar hún sá spegilmynd sína á speglinum þá hélt hún alltaf að það væri annar fugl sem hélt með henni félagskap og hún gerði ekkert annað en að passa spegilinn.
Það mátti alls ekki koma við þennan ‘'heilaga’' spegil annars var maður bitinn og það fast.

Svo stuttu eftir það fékk ég mér annan páfagauk sem ég hélt að mundi nún aðeins kæta hana Gulu mína sem gerði ekkrt en að hanga hjá þessum soegli en hún hélt áfram að passa spegilinn fyrir nýja páfagauknum.

Þannig að hann varð lonsome guy en gerðist mjög gæfur og fannst ekkert skemmtilegra en að fá að sitja á öxlinni eða á puttanum á manni alla daga.
En svo kom af því að hann náði að opna búrið sitt eina nóttina og flaug út um opin glugga, en Gulu datt ekki í hug að fara með honum þar sem að það var ekki hægt að skilja greyið spegilinn eftir einan :)

Með bestu kveðjum:
Exciting
Með bestu kveðju: