Elisha Cuthbert Elisha Cuthbert fæddist þann 30. Nóvember, 1982 í bænum Calgary í Kanada. Hún ólst upp í Quebec með foreldrum sínum Patriciu og Kevin og systkinum sínum Jonathan og Lee-Ann.

Fyrsta módelsamningnum lenti hún þegar hún var 7 ára en fyrsta reynsla hennar í sjónvarpi var hlutverk í barnaþættinum “Popular mechanics” þegar hún var 15 ára. Þar sem hún stóð sig með prýði. Reyndar svo vel að Hillary clinton bauð henni á fund sinn í Washington.

Þegar hún var 17 ára flutti hún til LA og ætlaði að reyna að meika það sem leikkona. Lék hún þá í myndinni í Airspeed (1998) og Time at the top (1999).

Seinna árið 1999 fékk hún hlutverk í þættinum Are you afraid of the dark? Orðspor hennar fór nú vaxandi og með leik sínum í Lucky Girl sannaði hún sig enn fremur sem leikkona. Sem fangaði athygli framleiðenda sem undirbjuggu gerð spennuþáttanna “24”.

Þar fékk hún hlurverk Kim, dóttur Jack Bauer (Keifer Sutherland) sem barðist þar gegn hryðjuverkamönnum sem ætluðu að ráða af dögum verðandi forseta bandaríkjanna. Þá komst hún í fréttir þegar við gerð þáttanna réðst á hana fjallaljón. Fór hún dauðskelkuð á sjúkrahús með “ó, ó” á hendinni.

Á meðan lék hún líka aukahlutverk í grínmyndinni Old School áður en hún lék í Love Actually breskri rómantískri gamanmynd og The Girl Next Door þar sem hún leikur fyrrverandi klámstjörnu sem fangar athygli háskólanema á útskriftarári sem býr í næsta húsi.

Núna er hún að leika í The House of Wax og Dot sem koma á næsta ári.

Núna býr hún í Los Angeles Californíu. Í frístundum sínum fer hún á skíði, snjóbretti, teiknar, tekur myndir, fer á hljólaskauta og málar (bílskúrinn hennar er settur upp sem málunarstofa). Henni mislíkar að fljúga.

Hér eru þær myndir og þættir sem hún hefur leikið í:

2005
House of Wax

Kemur 4/29
2005
Dot
Persóna: Nina

2004
The Girl Next Door
Persóna: Danielle

2003
Love Actually
Persóna: Carol-Anne, American Goddess

2003
Old School
Persóna: Darcie
2003
24: Season 03
Persóna: Kim Bauer
2002
24: Season 02
Persóna: Kim Bauer
2001
24 [TV Series]
Persóna: Kimberly Bauer, Kim Bauer
2001
24: Season 01
Persóna: Kimberly Bauer
2000
Mail to the Chief
Persóna: Madison Osgood
1999

Time at the Top
1998

Nico the Unicorn
1998

Airspeed
1997

Popular Mechanics for Kids [TV Series]
Persóna: Kynnir
1997
Dancing on the Moon
Persóna: Sarah