Kylie Ann Minogue Ég veit nú ekkert alveg svakalega mikið um Kylie Minogue eða ekki þannig að ég gæti blaðrað um hana og skrifað grein upp úr mér um hana en mig langaði alveg svakalega að skrifa grein um hana svo ég leit inn á eina heimasíðu sem gaf mér upplýsingar frá henni.

Það koma margar stjörnum frá Ástralíu eins og Nicole Kidman og Kylie Minogue sem ég ætla að skrifa um.
Kylie fæddist 28 Maí 1968 á Betlehem spítalanum í Melbourne í Ástralíu. Hún heitir fullu nafni Kylie Ann Minogue en við flest þekkjum hana sem Kylie Minogue en þekkjum hana ekki með miðnafnið hennar.

Foreldrar Kylie eru Carol og Ron Minogue eiga ekki einungis Kylie en meðal annars er systir hennar Dannii Minogue sem sumir þekkja og yngri bróðir hennar heitir Brenden Minogue og er sjónvarpsupptökumaður…

Kylie hefur gefið frá sér 5 plötur sem eru…

Fever
Better The Devil You Know
Enjoy Yourself
Confide In Me
Kylie

…Söngurinn er samt ekki það eina sem Kylie kann því hún hefur einnig leikið í kvikmyndum og hér eru þær…

Moulin Rouge (2001)
Cut (2000)
St. Francisville Experiment, The/ Cut (2000)
Bio-Dome (1995)
Street Fighter (1995)

..kylie hefur samt ekki einungis verið að leika í kvikmyndum því hún hefur einnig leikið í sjónvarpsþáttum og má þá sérstaklega nefna Neigbours sem flestir þekkja af stöð 2 eða áhugamálið á þessari síðu um þennan þátt.
Það er samt ekki skrítið vegna hvers lands þessir þættir eru því þeir eru ástralskir eins og Kylie er.

Það halda líklegast flestir að kylie sé rauðhærð eða dökkhærð en hárið á henni er litað rautt en er í rauninni Ljóst.
Eins og flestir vita er hún líka ekki stór og ekki nema 153 cm á hæð.

Hún er núna búsett í London í Englandi en hún hefur þá flutt frá annari heimsálfu til Evrópu ;)

Með kv. Hallat