Christina Aguilera Söngkonan Christina Aguilera, hefur löngum verið þekkt sem góð söngkona, en einnig mikil daðurdós og glenna. Hún var svo blindfull í partýi um daginn að sjálf Mariah Carey sagði henni að fara að passa sig svo að hún lenti ekki í því sama og hún.
Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um hana, en lögin hennar eru fín. Ég ákvað að skrifa aðeins um hana, þar sem hún er í hámarki vinsældanna um þessar mundir.

Fullt nafn: Christina Maria Aguilera

Starfar bara sem söngkona, en margar frægu stelpnanna hafa verið að leggja leiðir sínar til módelstarfa með söngnum.

Hún er fædd 18. desember 1980 í Staten Island, New York (ég hélt hún væri yngri en 22).
Upprunalegar ættir hennar má hinsvegar rekja til Írlands og Ekvador.

Hún er 5'2“ á hæð, en ég veit ekki hvað það eru margir cm. Svo er hún 102 lbs, en ég held að það séu 51 kg. Þið megið annars bara leiðrétta þetta. Hún segist vera í fatastærð 2, en mér finnst nú frekar fáránlegt að segjast bara vera í einni ákveðinni fatastærð, þar sem það fer algjörlega eftir því hvaða merki þú meinar. Til dæmis gæti ég trúað að hún væri í 26 í Diesel.

Það stendur um hana að hennar upprunalegi augnlitur sé blár, en hún noti hins vegar linsur. Mér hefur alltaf sýnst hún vera með blá augu, þannig að það eru örugglega bara linsurnar sem eru bláar og upprunalegi augnliturinn hennar hlýtur þá að vera eitthvernveginn öðruvísi en blár. Svo kemur líka fram að hennar upprunalegi háralitur sé ljós, en ég hef lesið það að í skóla hafi hún verið með brúnt hár, og brún augu.



Fjölskylda:

Pabbi hennar heitir Fausto Aguilera og mamma hennar heitir Shelly Kearns. En þau eru skilin.
Svo á Christina stjúpfaðir, James Kearns, og hún þakkaði honum í Grammy verðlauna ræðu sinni.

Christina á 16 ára systir, Rachel og 6 ára bróðir Micheal.
Svo á hún einnig stjúpsystkini, þau Casey og Stephanie.



Christina hefur unnið til eftirfarandi verðlauna:

The 2002 MVPA Video Award

ALMA Awards 2002

The Grammys 2002

My Vh1 Awards 2002

Latin Grammy 2001

Univision's 2002 Lo Nuestro Award

Radio Music Awards 2001

TMF Award

2001 BMI Awards

2001 Teen Choice Awards

2001 World Music Awards

2001 Blockbuster Awards

2001 Billboard Latin Music Awards

2001 Lo Nuestro Awards

The Billboard Music Awards 2000

Spanish ”Amigo" Award

Teen Magazine 2000

Starlight Award

Latina Magazine

'Sexiest Teen Idols'

Grammys 2000

Blockbuster Entertainment 2000 Awards

Christina received the honor of being one of
10 Most Fascinating Women of 1999!

Ivor Novello Awards