Sandra Bullock Sandra Bullock hefur lengi verið ein þeim leikkonum sem ég veit að leikur vel og það er hægt að treysta á að hún sé góð í myndum. Hún er svoldið sígild að mínu mati. Og þegar Miss Congeniality sló í gegn varð ég enn meiri aðdáandi hennar. Þess vegna skrifaði ég hérna nokkrar staðreyndir um hana…


Fullt nafn: Sandra Annette Bullock

Starf: Leikkona og módel

Hún er fædd: 26. júlí, 1964, í Arlington (Bandaríkjunum).

Hæð: 172 cm

Þyngd: 50-70 kg (sem mér finnst nú svoldið breið tala, hún getur varla verið 50 kíló og þá allavegana ólíklegt að flakka á milli 20 kílóa).

Shoe size: 8 og hálft“ sem ég held að sé 41 og hálft

Fjölskylda: pabbi hennar heitir John (voice coach, þið getið kannski hjálpað mér að þýða þetta); mamma hennar heitir Helga (óperu söngkona) og svo á hún eina systir: Gesine (lögfræðingur)

Menntun:
Var fyrst í ”grunnskóla“ sem heitir Washington-Lee High school, og
fór svo í East Carolina University, Greenville, norður Carolinu.


Áhugamál: Salsa og flamenco dansar, spila á píanó, versla, fjalla klifur, brimbretti, internetið og hafa gaman með vinum.

Uppáhalds matur: Kentucky Fried Chicken, rjómaís, súkkulaði og gúmmíbirnir.

Hún hlustar á: Tom Jones, Portishead, djazz, samba og klassíska músik.

Uppáhalds rithöfundur: John Steinbeck

Uppáhalds bíómyndir: The Wizard of Oz and ”allt með Audrey Hepburn.“



Svo á hún auðvitað sérstakt ”fan mail" fyrir þá sem hafa áhuga á að senda henni póst:

Sandra Bullock
c/o Creative Artists Agency
9830 Wilshire Boulevard
Beverly Hills 90212
Los Angeles, CA
USA