Bandarískt áróðursspjald frá tímum Síðari heimstyrjaldar sem hvetur Bandaríkjamenn til að minnast árásarinnar á Perluhöfn 7. desember 1941.
Erhard Milch var næst æðsti yfirmaður þýska flughersins í síðari heimsstyrjöld, á eftir Hermanni Göring. Erhrad Milch var leiðandi í lofthernaði Þjóðverja og hafði mikil áhrif meðal æðstu manna þriðja ríkisins, m.a Hitler var góður vinur hans. Og ótrúlegt en satt, Erhard Milch var hálfur gyðingur og það var á allra vitorði. Nasistar breyttu einfaldlega faðerni hans og sögðu að hann væri hreinn aríi. Þannig var það í Þriðja ríkinu.
Wilhelm Frankl var einn af frægustu orustuflugmönnum Þjóðverja í fyrri heimsstyrjöldinni, hann hlaut æðsta heiðursmerki Þýska keisaradæmisins orðuna Pour lé mérite auk járnkrossins. Þegar að hann féll árið 1917 var hann búinn að skjóta yfir 40 flugvélar niður. Wilhelm Frankl var gyðingur enda börðust margir þýskir gyðingar í fyrri heimsstyrjöldinni í þýska hernum og urðu stríðshetjur en Wilhelm Frankl var þeirra frægastur.