Þessi maður átti síðarmeir á ævinni eftir að vera þekktur og hylltur af tugmilljónum en forsmáður eftir dauða sinn. Þekkið þið svipinn?
Hér að ofan má berja augum tvær gerðir af árásarrifflum (assault rifles). Sá fyrri kallast MP-44, MaschinenPistole-44 (einnig þekktur sem StG. 44 eða Sturmgrwehr-44) og var framleiddur í Síðari heimstyrjöld af Þjóðverjum og tekinn í notkun árið 1944. Sá riffill hefur jafan verið titlaður sem fyrsti árásarriffill sögunnar. Hinn riffillinn er hinn frægi rússneski AK-47 árásarriffill (Avtomat Kalashnikova-47) sem nefndur var eftir hönnuði sínum M.K. Kalashnikov. Sá riffill var hannaður eftir lok Seinni heimstyrjaldar og tekinn í notkun í sovézka hernum 1947. Á myndinni hér að ofan má sjá að rifflarnir tveir eru nauðalíkir enda ljóst að sá rússneski hefur mjög líklega verið hannaður eftir herteknum teikningum af hinum þýzka eftir ósigur Þýzkalands í heimstyrjöldinni.