Brannon Braga og Rick Berman
Í lok október munu mörlandar eiga möguleika á að skoða og jafnvel kaupa nýja Honda Civic Type-R. Umboðsaðilinn, Bernhard, virðist allavega vera viss um að bíllinn sé fremstur meðal jafningja og víst er að á blaði slær honum engin þeirra við. Það verður þó gaman að sjá hvort þessi bíll nær viðlíka vinsældum og bíllinn sem hann leysir af hólmi, Civic VTi.
Nokkuð áhugaverð síða sem segir frá reynslu eigenda þessa TVR Cerbera (líklegast 4.2, gæti verið 4.5). Áhugaverðast er kostnaður við að eiga þennan bíl og GPS staðfestur hámarkshraði sem þrátt fyrir að vera ótrúlegur gerir ekki meira en að jafna lostið vegna kostnaðarins.