Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Glóblesa frá Tunguhálsi I (2 álit)

Glóblesa frá Tunguhálsi I Glóblesa frá Tunguhálsi I
Geggjuð mynd :P

Ron+spider=sætt (28 álit)

Ron+spider=sætt hehe :P

Ég óblörraður :D með bassa :) (47 álit)

Ég óblörraður :D með bassa :) Þetta er s.s. ég með óblörrað andlit með 5 strengja Ibanez SRX705 bassa tröllið mitt :) OG sko, ég er bara ekkert svo ljótur :)

Óvenjulegir "Þjóðverjar" (14 álit)

Óvenjulegir "Þjóðverjar" Er þetta ekki eitthvað skrýtið?

…í raun eru þetta ekki Þjóðverjar, heldur liðsmenn kínverskra þjóðernissinna (Kuomintang), fyrir Seinni heimsstyrjöldina.

Þjóðernissinnar undir forystu Tsjang-Hai Sheks, börðust gegn kommúnistum Maós formanns, en eftir innrás Japana í landið börðust bæði liðin við þá.

Útskýringin á þessum þýsku einkennisbúningum er sú að á tímabili fengu þjóðernissinnar hernaðaraðstoð (í formi vopna, útbúnaðar, ráðgjafar og þjálfunar) frá Þýskalandi. Að öðru leyti voru tengsl þeirra við Þýskaland lítil, helsti stuðningsaðili þeirra (sérstaklega eftir WWII) var Bandaríkin.

Svo fór að lokum að Kanar gáfust upp á stuðningi sínum við stríð Tsjangs og manna hans á meginlandi Kína, og kommúnistar Maós tóku þar völd árið 1949. Tsjang flúði með leifarnar af her sínum til Taiwan, og gerði afdrifarík mistök með því að lýsa ekki yfir sjálfstæði, heldur þykjast vera útlægur leiðtogi alls Kína.

Öxulveldin (11 álit)

Öxulveldin Hér sést Adolf Hitler, Benito Mussolini og fleiri háttsettir þýskir og ítalskir embættismenn, meira að segja styrtimennið Göring á góðvirðisdegi.

Þjóðverjar græddu ekki mikið á bandalagi sínu við Ítali og Japani. Þeir áttu jú allir sameginlega óvini, og voru allir fasistar.Þjóðverjar höfðu unnið sér inn stríð við bandamenn með innrás sinni í Pólland og Japanir voru í stríði við þá í herför sinni fyrir sameinaðri A-Asíu undir japanskri fasistastjórn og Ítalir vildu eigna sér N-Afríku og endurbyggja rómverska keisaradæmið. En Þjóðverjar sem lögðu áherslu á innrásina í Sovétríkin í krossferð sinni gegn bolsévisma töpuðu á þessu bandalagi.

Mussolini fanst hann vera minni maður þegar Hitler var búinn að leggja undir sig Pólland og niðurlöndin, og innlimaði Albaníu og réðst á Grikkland. En hin nýji rómverski her fór halloka í baráttu sinni gegn Grikkjum og Þjóðverjar komu niður og björguðu þeim en,Ítalir höfðu dregið athygli bandamanna að balkanskaganum og Þjóðverjar komnir með nýja vígstöð til að verja.
Svo ég tali nú ekki um þegar Ítalir réðust inn í Egyptaland og Túnis frá Lýbíu og byrjuðu að tapa kom Hitler aftur til aðstoðar með Afrika korps til að það myndu nú ekki opnast dyr til S-Þýskalands.

Japanir sem voru greinilega að gera allt annað en þjóðverjar (eins og Ítalir) áttu auðvitað að hjálpa til með innrásina í Sovétríkin eða bara koma ekki nálægt þjóðverjum. Eftir að njósnarar Sovétmanna komust að því að Japanir myndu alls ekki gera alsherjarárás á Síberíu gátu þeir sent um það bil sexhundruð þúsund manna varðlið frá síberíu alla leið vestur fyrir Úralfjöll og skiptu sköpum við sigurinn við Stalingrad. Svo ekki sé talað um Pearl harbor sem dró Bandaríkjamenn í stríðið.

En mér er spurn? Hvað græddi Þýskaland, leiðtogi öxulveldanna á þessu bandalagi?

Tolkien (2 álit)

Tolkien Elrond í Lord of the Rings teinkimyndinni

Galadríel (3 álit)

Galadríel Galadríel þegar hringurinn freistar hennar.

Legolas (1 álit)

Legolas Þar sem enginn er að senda inn myndir ákvað ég að senda inn mynd af Legolasi eftir Herzwig Holzmann sem ég litaði í Photoshop. www.tolkien-kreativ.de/ tolkien/z_herwig.html

Fróði mundar Sting (1 álit)

Fróði mundar Sting Fróði með sverðið góða Sting, sem Bilbó gaf honum.

Simon Le Bon (2 álit)

Simon Le Bon Simon Le Bon einn af forsprökkum Duran Duran.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok