Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

John Bonham (26 álit)

John Bonham Mjög góður trommari og flott sett :D

Stærðir á settinu hans:
26“ x 14” bass
18“ x 16” and 16“ x 16” floor toms
14“ x 12” tom
6.5“ x 14” metal snare

Lítið krútt (0 álit)

Lítið krútt Þetta er nóvember myndin í 2006 collection á anne geddes síðunni :) agalegt krútt þarna á ferð

Maiden Jól (37 álit)

Maiden Jól Þarna höfum við “lukkudýr” bresku þungarokkshljómsveitarinnar Iron Maiden en á heimasíðu þeirra: www.ironmaiden.com er niðurtalning í jólin og ein ný svona mynd á hverjum degi. Þessi er frá 12. desembe

Jólatré! (4 álit)

Jólatré! Jólatré! =^.^=

Audioslave (10 álit)

Audioslave Hér er snilldar hljómsveitinn
Audioslave og örugglega eiit af
þeim bestu ALVÖRU Rock hljómsveitum í dag, en ég biðst afsökunn ef hún er of lítill mynd:( :)

Ekkað flipp (2 álit)

Ekkað flipp Bara mynd sem ég tók….fór út með vélina og bullaði eitthvað

Djöfsi (4 álit)

Djöfsi Fire Demon

Robert Altman (1925-2006) (0 álit)

Robert Altman (1925-2006) Ég sendi þessa mynd til að bera virðingu fyrir mjög virtum leikstjóra honum Robert Altman. Robert gerði margar myndir á sýnum tíma. Þær eftirminnilegustu að mínu mati eru þær Gosford Park og M.A.S.H. sem eru alveg einstaklega góðar.

R.I.P Robert and God bless.

Vendipunktur (26 álit)

Vendipunktur Eftir að hafað lagt undir sig nær helming vesturhluta Sovétríkjanna komu Þjóðverjar að þrem lykilborgum. Norðurhersafnaðurinn að Leníngrad, Miðhersafnaðurinn að Moskvu og Suðurhersafnaðurinn að Stalíngrad. En Sovétmenn sem höfðu verið í nær stöðugu undanhaldi létu ekki berja sig lengra til austurs og héldu öllum borgunum þrátt fyrir gríðarlega áherslu Foringjans á að þessum lykilstöðvum yrði náð.

Þjóðverjar sátu um Leningrad og stóð umsátrið frá 1941-1944, en borgin var varin með 930.000 hermönnum sem hindraði áhlaup þjóðverja. Sóknin að Moskvu mistókst einnig og með hjálp vetrarins 1941 tókst Sovétmönnum að brjóta þýsku sóknina á bak aftur og hófu sína fyrstu eiginlegu gagnárás.

En mesta afrekið var þó við Stalingrad, sem var borgin við Volgu sem var það lengsta sem Þjóðverjar komust. Hitler krafðist þess að borgin skyldi hertekin enda gilti hún lykilhlutverki sem bækistöðvar fyrir stuðning við sókina til Kákasusfjalla, einnig var hún mikil iðnaðarborg (þó reyndar var ekki mikið eftir af verksmiðjum eftir orrustuna)en svo var það pólitískt áróðurslykilatriði fyrir báða aðila. Borgin bar nafn leiðtogans Stalíns og Bæði Hitler og Stalín kröfðust sigurs án undantekningar. Aftur kom vetur '42-43 og náðu Sovétmenn að umkringja borgina og svæla Þjóðverja til uppgjafar.

Þjóðverjar höfðu blitzað sig að borginni með leifturstríðstaktík sinni en þarna breyttist hin göfuga hernaðarlist þjóverja í blóðuga götubardaga sem stóð í nokkra mánuði.
Stalingrad var mesti vendipunktur fyrir gang seinni heimstyrjaldarinnar og táknaði upphafið að endinum.

Iverson til Denver Nuggets (3 álit)

Iverson til Denver Nuggets Flestir sem fylgjast eitthvað með NBA ættu að vita að Allen Iverson var að fara frá Philadelfia 76ers en spuringin var hvert hann myndi fara, núna er Iverson kominn í Denver og verður þar með Melo sem er einmitt stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar, og Allen Iverson þar rétt á eftir honum með 0.4 stigum færri í leik.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok