það gamla og góða
Þetta eru hestar sem voru með í hestferð inn í Þórsmörk sem ég fór í um daginn… Ég mæli mjög með að fara í hestaferð þangað, þetta er rosalega fallegt og skemmtilegt, svo er þá hægt að fara í reiðtúr t.d. inn í Hamraskóga og það er undurfallegt verð ég að segja… Þessi mynd er hins vegar tekin í hólfinu þar sem hestarnir eru geymdir,þarna komst ég upp á klett og var að taka myndir yfir hópinn…
Nýr kíkir frá NASA í samstarfi við ESA og CSA(ASC) sem er áætlað að koma á sporbraut um jörðu árið 2013. Kíkirinn hlýtur heitið James Webb Space Telescope og á að taka við af HST. Hann er töluvert stærri eða 6,5m í þvermál á meðan HST er 2,4m og er því um 6 sinnum stærri. Einnig er hann gæddur góðum IR-búnaði.