Mynd sem ég tók af vinum mínum. Bara svona spontaneous shot.Vann hana ekkert nema ég bætti við smá skerpu, setti rammann og stafablablaið.
Tattoo sem ég teiknaði og fékk alex til að gera skuggana í. Tók u.þ.b einn tíma að gera, efst á baki.
Þessi gaur hefur verið minn uppáhaldstónlistamaður í tíu ár. Hann er maðurinn og röddin bakvið The Sisters of Mercy og er víst alveg snargeðbilaður og ótrúlega leiðilegur. Hann er eini originalmeðlimur Sisters eftir nema trommuheilinn Doktor Avalanche. Bandið er samt ennþá til þó að ný plata hafi ekki komið síðan Vision Thing 1990(allt í allt 3 plötur og 2 safndiskar]. Ég er ekki viss um að ég myndi vilja hitta þennan mann enn það væri fróðlegt að sjá hvað væri að gerast í kollinum á honum.