Fann þennan fína tabletop fyrir norðan í vetur, sömu helgi og snocross keppnin á Húsavík var.Einhverjar fleiri myndir frá vetrinum eru á Myspace hjá mér.
Ég og Heiðar skelltum okkur í æfingabúðir Stefan og Harry Everts frá 16-24 feb núna síðastliðinn. Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð og var okkur kennt heilmargt sem mun koma sér vel. Brautirnar voru geggjaðar en fyrstu 2-3 dagana var reyndar rigning og töluverð drulla, en maður fékk bara meiri æfingu út úr því.
Einhvern tímann heyrt um þessa? Ekki?