Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Fuck da bear (38 álit)

Fuck da bear Ég gjörsamlega elska þetta.. =^^=

The Toxic Twins (12 álit)

The Toxic Twins Hér sjást þeir Steven Tyler og Joe Perry saman á góðum degi í fyrra. Saman eru þeir í hljómsveitini Aerosmith sem ég er að hlusta´a núna þegar ég skrifa þetta og ákvað að senda inn eitt stykki mynd.

Hljómsveitin Aerosmith var stofnuð 1970 í Boston, Massachusetts í Bandaríkjunum. Hún spilaði blúsaða rokk tónlist með glamy ívafi. Steven Tyler hefur allveg magnaða rödd og það var aðalega hún og gítarleikur Joe Perry's sem fleytti þeim áfram. alls hafa verið 8 meðlimir í hljómsveitini en þeir 5 sem hafa verið mest allann tímann eru þeir:

Steven Tyler - Söngur, munnharpa og píanó.
Joe Perry - Gítar
Brad Whitford - Gítar
Tom Hamilton - Bassi
Joey Kramer - Trommur

Þeir hafa alls gefið út 14 plötur plús best of plötur. Mæli með einhverri best of plötu til að byrja með og 1989 plötuni Pump.

Lagið Cryin af plötuni Get a Grip
[youtube]http://youtube.com/watch?v=1HD3Sqlcm3o

Lagið I dont wana miss a thing af Armageddon soundtrackinu.
[youtube]http://youtube.com/watch?v=Vo_0UXRY_rY&feature=related

lagið Pink af plötuni Nine Lives
[youtube]http://youtube.com/watch?v=RLRLhV9U0kQ&feature=related

Lagið Dude(looks a lady) af plötuni Permanent Vacation
[youtube]http://youtube.com/watch?v=GbsBJmx-m2s&feature=related

Lagið Walk this way, flutt af Run-D.M.C og Aerosmith
[youtube]http://youtube.com/watch?v=o8A0rhVG91U&feature=related

Og lagið í sinni upprunalegu mynd með einungis Aerosmith og af plötuni Toys in the Attic
[youtube]http://youtube.com/watch?v=srPKqAt1UQI

Lesa má nánar um Aerosmith á síðuni þeirra www.aerosmith.com og á wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/Aerosmith

Steve Maxwell í Mjölni 6. ágúst (4 álit)

Steve Maxwell í Mjölni 6. ágúst BJJ-veisla Mjölnis í sumar heldur áfram! Miðvikudaginn 6. ágúst verður Steve Maxwell með 2 tíma BJJ námskeið á milli kl. 18:00 og 20:00

Flestir Mjölnismenn þekkja Maxwell en þess má geta að hann er tvöfaldur “Senior World Brazilian Jiu-Jitsu Champion”!

Verð 3.000 kr.

Skráning er hafin í afgreiðslu Mjölnis. (ath greiða verður við skráningu)

Devil Girl (7 álit)

Devil Girl Mynd sem ég teiknaði einhverntíman.

The Legend of the Ice People (1 álit)

The Legend of the Ice People The Legend of the Ice People

Arnold Schwarzenegger og Dave Draper (11 álit)

Arnold Schwarzenegger og Dave Draper Arnold Schwarzenegger og Dave Draper saman í ræktinni.

Ehhh, rúst (13 álit)

Ehhh, rúst Stökk fram að sækja mér kókómjólk, kom til baka og mig blöskraði!

Lotus (4 álit)

Lotus jæjja þetta er nýji Lotusinn Exige S, Lotus hefur alltaf verið uppáhalds bílanir mínir ég hreint út sagt elska ég þessa bíla.
smá info um þennan bíl :
240 HP SUPERCHARGED
0-60 mph 4.0 sec
0-100 mph 10.0 sec
Kvikindið kostar 6-7 millu kominn til landsins ef þú pantar í gegnum www.Islandus.is
(endilega kíkjið á www.LotusCars.com og checkið bílanna sem þeir frammleiða)

Prússland (2 álit)

Prússland Prússland var á 19. öld hið langöflugasta af ríkjaeiningum Þýskalands, og var algjörlega í aðalhlutverki við sameiningu hinna fjölmörgu ríkja og furstadæma landsins í Þýska keisaradæmið árið 1871. Þar var það “Járnkanslarinn” svonefndi Otto von Bismarck sem var aðal “arkitektinn”, en Vilhjálmur I konungur Prússlands var gerður að fyrsta keisara sameinaðs Þýskalands.

Hér er ágætis kort sem sýnir þróun mála við útþenslu Prússlands og stofnun Keisaradæmisins. Eins og sjá má eru nútíma landamæri Þýskalands víðast hvar þau sömu vestan- og sunnanmegin, ef Alsace og Lorraine eru undanskilin. Austanmegin misstu Þjóðverjar hinsvegar gríðarlegt svæði til Rússa og Pólverja eftir WWII. Þetta voru allt svæði sem höfðu verið prússnesk (þar með þýsk) síðan á miðöldum, enda þótti mörgum (þ.á m. Winston Churchill) þetta vera hin mesta óhæfa.

Sem stórnsýslueining innan Þýskalands var Prússland í raun úr sögunni eftir endurskipulagningu sem nazistar stóðu fyrir árið 1935, og endanlega þegar Bandamenn endurskipulögðu hið hernumda Þýskaland eftir lok WWII.

Engu að síður er Þýskaland nútímans enn að ýmsu leyti mótað af “prússneskum anda”. Þjóðverjar eru í dag margir stoltir af prússnesku arfleifðinni, sem þeim þykir Hitler & Co hafa gróflega misnotað og komið vægast sagt slæmu orði á.

Mark Knopfler (12 álit)

Mark Knopfler Einn mesti snillingur allra tíma.. Hann sko höndlar hljóðfærið eins og eikka rugl sko! :O
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok