Hérna má sjá Rohan Royal Guard , eða Heiðurverði Róhans. Mér finnst þeir alveg áberandi flottir og ég ætla að kaupa mér nokkra þegar þeir koma til landsins.
Citroën CX Prestige er alvöru límúsína með 309 cm hjólahaf þótt útlitið minni kannski frekar á geimskip. Það er einmitt partur af sjarmanum og tæknibúnaðurinn er alveg í takt við útlitið, það er engu líkt að keyra svona bíl. Takið eftir íhvolfri afturrúðunni, en loftstraumur sér um að halda henni hreinni svo að rúðuþurrka er óþarfi.