Er nýkomin með photoshop og var að leika mér með einhverja brusha og dót.Endilega commenta hvað ykkur finnst um þetta:)
Upprunaleg mynd : http://entertainment.webshots.com/photo/2489297260100068067zLieDM
Hérna sjáum við Coverið á Primitive með hljómsveitinni Soulfly, en hún var stofnuð af snillingnum Max Cavalera sem allir þekkja úr Sepultura, en auk þess hefur Roy Mayorga oft spilað á trommur með þeim Live. Þetta er reyndar eina platan með þeim sem ég hef hlustað almennilega á hingað til, en ég hef verið að vinna mig hægt í gegnum alla diskana þeirra. Þetta er alls ekki allra smekkur, aðallega vegna þess að þeir blanda stundum saman mjög ólíkum tónlistarstefnum í lögin sín, jafnvel Reegae og Hip-Hop, en langoftast er þetta bara pjúra metall. Mæli með lögunum Jumpdafuckup og Bring It af þessari plötu, en svo er Soulfly II mjög gott rólegra lag.