Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Þíða í Kalda stríðinu (5 álit)

Þíða í Kalda stríðinu Hér spjalla þeir saman, “fjandvinirnir” Leonid Brésnev Sovétleiðtogi og Richard Nixon Bandaríkjaforseti, í heimsókn þess fyrrnefnda til Washington árið 1973.

Heimsókn þessi var liður í slökunarstefnu (detente) Nixons upp úr 1970. Ætlunin var að bæta samskiptin við bæði stóru kommúnistaríkin, Sovétríkin og Kína, eftir áratugalangt “frost”. Árið áður hafði gamli “kommaveiðarinn” Nixon farið í fræga heimsókn til Kína, sem þótti mjög flott “útspil” í alþjóðapólitíkinni, því samskipti Kína og Sovét voru um það leyti með allra versta móti.

Rússum þótti að sjálfsögðu ill sú tilhugsun að einhver hentugleika-vinskapur væri að myndast milli þessara tveggja höfuðandstæðinga sinna, og ákváðu því líka að eiga sjálfir smá vinalegt spjall við Nixon og Kissinger utanríkisráðherra hans.

Nixon hrökklaðist sem kunnugt er úr embætti vegna Watergate málsins ári síðar. En hafði óneitanlega náð góðum árangri í utanríkismálum með þessum fundum sínum. Samskipti USA við Kína hafa æ síðan verið ágæt, þó stundum hafi kastast í einhverja smá kekki.

Samskiptin við Sovétríkin bötnuðu heilmikið, en áttu hinsvegar eftir að versna aftur áður en yfir lauk. Það er saga sem ég skrifaði eitt sitt grein um, sem finna má á http://www.hugi.is/saga/articles.php?page=view&contentId=2503793

Trivia (6 álit)

Trivia Hvaða mynd og hvaða land? :P

1337 (16 álit)

1337 Warlockinn minn með 1337 (Leet) spell power!
tilviljun? ég held ekki!

Matthew Bellamy (35 álit)

Matthew Bellamy Þetta er gg náungi.

bak (7 álit)

bak bak

UAZ 469 (5 álit)

UAZ 469 UAZ 469 voru hannaðir árið 1975 í Sovétríkjunum fyrir sovéska herinn sem skipti honum út fyrir gömlu GAZ jeppana sem standard herjeppa í stríði og friði. Bílarnir voru framleiddir allt fram til hrunsins og voru einnig notaðir af öllum herjum Varsjárbandalagsins og eftir hrunið hefur rússneski herinn notað hann og gerir enn í dag.

Þrátt fyrir það að hafa aðeins verið framleiddur til hernaðarnota voru þó margir þessara bíla í almennri umferð víða um heim en þetta er líklegast ástæðan fyrir því hversu lítið sást af þeim hér á landi miðað við aðra sovéska bíla sem nokkuð mikið var um í denn.

En jeppar þessir hafa þótt afar góðir all-terrain off-road jeppar, svo ég leifi mér að sletta, og geta sér afar góðs orðsspors sem mjög áreiðanlegir vinnuþjarkar og eru frægir fyrir það hversu auðvelt það á að vera fyrir óbifvélavirkjamenntaðan mann að gera við.

Eftir hrunið hófu þeir einnig framleiðslu til borgaralegra nota, þó verksmiðjurnar hafi staðið höllum fæti í sjálfstæðum rekstri í samkeppni markaðshagkerfisins. UAZ verksmiðjurnar framleiða nú borgaralega útgáfu af honum sem kallast UAZ Hunter, en þykja þeir þó hafa farið mikið aftur úr í gæðum. Þeir UAZ jeppar sem eru á götunum í dag eru því flestir gamlir sovéskir herjeppar sem hafa ætíð staðið fyrir sínu, allavega af bílum í þeim flokki.

En auk þess að vera góðir jeppar eru þeir mjög flottir og óhætt er að segja að maður væri djöfull til í að eiga einn svona gamlan.

The Passion of the Christ (20 álit)

The Passion of the Christ Just got served.

Morgan Freeman (28 álit)

Morgan Freeman Þetta er dagsatt, hann er alltaf þessi spekingslegi gaur með tólin.

Skoti. (10 álit)

Skoti. Kvenlegur skoti…

Trivia (14 álit)

Trivia Þetta er platan Christmas Rappin' með Kurtis Brown.
Hvernig tengist þessi plata metalnum?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok