Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Ókindin (10 álit)

Ókindin Ég efast um að þeir gætu verið Marco og Úlfar.

Gene Roddenberry og George Lucas (3 álit)

Gene Roddenberry og George Lucas Gene Roddenberry (Star Trek) og George Lucas (Star Wars) saman á ánægjulegri stundu. Ég sendi þessa mynd inn vegna þess að ég vil segja þeim sem vilja endalaust þræta um hvort sé betra trekkið eða warsið að það er tilgangslaust, heimarnir tveir taka fyrir sitthvoran endan í vísindaskáldskap og eru í rauninni næstum því ósambærilegir.

Ég dýrka Star Wars en þrátt fyrir það hefur Star Trek alltaf haft djúpstæðari áhrif á mig og ég lít á sjálfan mig sem trekkara.

Heeee. (13 álit)

Heeee. Kakan sem ég og vinkona mín bökuðum í tilefni afmæli vinkonu okkar 2007. ;D

Tequila(scorpion) (10 álit)

Tequila(scorpion) Tequila scorpion

6 leikir til góða (3 álit)

6 leikir til góða Eitthvað virðast FH-ingar ekki hafa tíma til að spila í Úrvalsdeildinni þetta árið, eiga sex leiki inni á þá sem mest hafa spilað..

17. júní (2 álit)

17. júní ég vona eftir góðu veðri á 17. júní, fátt betra en að eiga góðann og hlýjann 17. júní með vinum og fjölskyldu :)

Litli Einræðisherran (43 álit)

Litli Einræðisherran Hér sést “Hinn ástkæri leiðtogi” Norður-Kóreu, Kim Jong-Il, í fangi föður síns sem nefndur var “Hinn mikli leiðtogi”.

Kim yngri fæddist í austanverðum Sovétríkjunum þar sem foreldrar hans voru í útlegð á árum Seinni heimsstyrjaldar. Heimaland þeirra var þá hernumið af Japönum, sem ekki voru neitt hrifnir af kommúnistum.

Í kjölfar stríðsins var Kim eldri gerður að leiðtoga Norður-Kóreu í skjóli Sovétmanna, og átti nokkrum árum síðar stærstan þátt í að hefja Kóreustríðið, eina mannskæðustu styrjöld 20. aldar utan heimsstyrjaldanna.

Eftir að Kóreustríðinu lauk árið 1953, einangraði Norður-Kórea sig brátt frá umheiminum, og þar var sett upp líklega öfgakenndasta kommúnistaharðstjórn sögunnar. “Stalínískari” en Sovétríki Stalíns, en jafnframt með sér-kóreskum tilbrigðum.

Kim eldri lést í hárri elli árið 1994, og tók þá sonur hans við völdum. Valda-erfir kunna að virðast skringilegar í kommúnistaríki, en í Norður-Kóreu kemur ekkert á óvart. Saga þessa lands undir stjórn Kim-feðga er með slíkum ólíkindum að halda mætti að um skopstælingu á alræðisríki sé að ræða fremur en raunveruleika. Víst er þó að Kóreumönnum, hvorki norðan né sunnan, þykir ekkert skoplegt við þá feðga, enda bera þeir ábyrgð á milljónum dauðsfalla undanfarna áratugi.

Langa og ítarlega grein um það má finna hér (ATH að hún er 6 ára gömul, og í tveim pörtum): http://www.guardian.co.uk/theobserver/2003/nov/02/features.magazine17

Svo er spurningin hvað gerist núna. Kim yngri er enn við völd að því að menn telja, en mun vera orðinn fárveikur, jafnvel dauðvona.

Á sama tíma er landið að prófa kjarnorkuvopn og hóta hinum ríku frændum sínum í suðri, sem og Japönum og Bandaríkjamönnum. Þarna gæti hæglega brotist út “Seinna Kóreustríðið” á næstunni.

Hvort að litli drengurinn á myndinni ræður enn einhverju um gang mála, er ekki vitað. Getgátur eru uppi um að e.t.v. sé hann dauðvona í öndunarvél eða jafnvel þegar látinn, og þessi nýlegu læti í raun hluti af innri valdabaráttu í þessu furðulega ríki.

Nú er bara að bíða og sjá.

Óli Klikk (30 álit)

Óli Klikk Oli Sykes!!!


<333333

Jessica Stroup (5 álit)

Jessica Stroup Jessica Stroup sem leikur Silver í 90210. Mér finnst þessi mynd ekkert rosa lík henni …

Spá í þessu (33 álit)

Spá í þessu Spá í að fá mér eitt svona, Finnst þetta nett fyrir fyrsta tattoo :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok