Gene Roddenberry og George Lucas Gene Roddenberry (Star Trek) og George Lucas (Star Wars) saman á ánægjulegri stundu. Ég sendi þessa mynd inn vegna þess að ég vil segja þeim sem vilja endalaust þræta um hvort sé betra trekkið eða warsið að það er tilgangslaust, heimarnir tveir taka fyrir sitthvoran endan í vísindaskáldskap og eru í rauninni næstum því ósambærilegir.

Ég dýrka Star Wars en þrátt fyrir það hefur Star Trek alltaf haft djúpstæðari áhrif á mig og ég lít á sjálfan mig sem trekkara.