mjög auðvelt…
Njáll heitir þessi hestur. Það var leikari sem átti þennan hest. Og leikarinn hét Bjössi og er nú farin. Þannig þessi hestur er 24.vetra. Og það er ný hætt að ríða út á honum því hann varð haltur í sumar :( Einn af bestu hestum sem ég hef þjálfað. Hann getur allveg verðið eins og 5.vetra og hann slær yngstu hestunum á bænum við. Hann er við góða heilsu. En nú er hann komin í frí.
Rómverskur hermaður sem ég teiknaði fyrir svona ári síðan. Hermaðurinn er frá u.þ.b. 100-200 e.kr. í þessari einkennandi lorica segmentata brynju eins og hún var seinna kölluð, einnig er hann með gladius, sem þýðir sverð á latínu og er venjulega rómverska sverðið, stutt og ætlað til að stinga. Hann er líka með “imperial gallic” hjálm eins og hann heitir á ensku sem er þessi venjulegi ef svo má að orði komast.