Halló

Langar að forvitnast um hvort einhver ykkar java forritaranna vitið um java klasa (helst GPL-aðan kóða) sem sýnir mun á String/StringBuffer ?
Vil helst meira en GNU diff sýnir… t.d. vildi ég, ef “Jón á hest” er breytt í “Jón er hestur”, sjá annaðhvort “á”->“er” og “hest”->“hestur” - eða ef það er stuðningur fyrir það “á hest”->“er hestur” - eða jafnvel bara svona eins og MS Word sýnir (hvernig sem það yrði nú útfært) þegar þú ert með “track changes” á.

Eru annars einhverjir þarna sem hafa litið að gera og vilja vera með í framsæknu verkefni sem getur nýst mörgum, og á að reyna að fá styrk frá hinu opinbera til að klára? Rétt er að taka fram að um er að ræða verkefni útfært í Java, verður vel skilgreint frá upphafi (góð þarfalýsing er á lokastigi). Ekki alveg útséð með hversu frjálst þetta verður - en mér þykir líklegt að þetta verði frítt, gefið út undir GPL.

Smu!

Tolli
tolli at tol.li