Sælir

Ég er búinn að skrifa IrcBot í C# sem gegnir hlutverki sínu alveg ágætlega, hann les skrá sem segir honum hvaða Irc rásir hann á að fara á og hvaða notendum hann á að sparka út.

EN… Hann bara vill ekki skila íslenskum stöfum í kick message, eða quit message eða bara í hvaða skipun sem honum er gefin.

Segjum að ég ætli að láta hann sparka út notandanum TMP:

KICK #einhverrás TMP “út með þig”
Þá skilar hann bara bulli þar sem séríslensku stafirnir eru, hvernig laga ég þetta?

Kv. Steiny :)