Ég er mjög nýlega farinn að dútla aðeins við C#, og hef í raun enga forritunarreynslu annað en eitthvað í javascript.

Málið er að ég þarf að búa til forrit sem biður um kennitölu notandans, t.d “1505802459”, og segir síðan notandanum í hvaða mánuði hann er fæddur. Ég hef leitað í þeim námsgögnum sem ég hef en ég bara fatta ekki hvaða aðferð ég á að nota.

Svo, endilega sýniði mér þessa sáraeinföldu lausn sem ég er viss um að sé til :)