Sælir félagar,

Ég skrifa þennan póst vegna þess að ég er í vanda með MSFlexGrid í C#.

Er að nota MSFlexGrid í VS2003 C# verkefni. Allt virkar fínt á tölvunni sem ég er að þróa forritið í eða tölvu með VS6 / VS2003 en þegar ég set forritið upp á annari tölvu fæ ég Unhandled Exception villu.

Jæja, það mætti halda að MSFlexGrid hefði ekki verið registerað á þesari tölvu en nei, þegar ég prófa að keyra VB6 forrit sem notar MSFlexGrid á sömu tölvu þá virkar MSFlexGrid fínt.

Er líka búin að prófa að búa til test í VB.NET 2003 með MSFlexGrid og það gefur líka Unhandled Exception.

Jæja, þá kemur spurninginn: Hefur einhver hérna lent í svipuðum vanda með ActiveX hluti sem voru partur af VB6 þegar þeir eru notaðir í .NET? Ef svo er er einvher hér með lausn á þessum vanda?

Kær kveðja, forritari í vanda