Ég er að skrifa Authentication plugin fyrir WMS í C# og er í örlitlu basli. Eina sem þarf að gera er að útfæra nokkur skil og registera plug-inið. Nú sé ég plugin-ið undir properties->Autentication, get debuggað það og séð að serverinn kallar á Enable og Disable. En serverinn kallar ekki á neitt authentication fall þegar client tengist. Fæ bara “Windows Media player cannot access file”. Kannast einhver við þessa lýsingu eða hefur reynslu af WMS forritun ?

belial