Go.is, internetlausnir, sem er hugbúnaðarfyrirtæki óskar eftir áhugasömum PHP/SQL forriturum í vinnu við spennandi og fjölbreytileg verkefni. Æskilegt er að viðkomandi hafi haldgóða þekkingu og reynslu af PHP forritun og geti skrifað lausnir fyrir bæði MySQL og PostgreSQL.

Að auki leitum við að “freelance” PHP heimasíðuforriturum og myndsmiðum til að hafa á skrá.

Áhugasamir geta sent póst á frosti@go.is og taki þar fram fyrri reynslu, verkefni og vísi í verkefni sem unnin hafa verið.