Nákvæmlega, vantar bara að geta fætt klasa með html skjali og hafa svo möguleika á að rúlla í gegnum öll html tög í skjalinu og attributes á þeim.
En hængurinn er sá, að þetta forrit verður service application þannig að ég virðist ekki getað notað IE, sem myndi annars henta ágætlega fyrir utan það að hann vill alltaf sækja allar myndir (sem er óþarfi í mínu tilviki).
Ég er búinn að leika mér aðeins með að gera þetta sjálfur og nota til þess regular expressions, en ég á í vandræðum með að parse html tagið sjálft með því. Það er að segja að brjóta html tagið niður í TAG NAME (a, img, font, etc) og svo í attribute-in sem name, key list (size=12, href="
http://www.hugi.is/“, etc) sérstaklega líka vegna þess að stundum er attribute name með engu value-i, líkt og í (option value=”test" selected), en þar er selected ekki með value.
Vona að einhver skilji bullið í mér :)