Ég hef verið að forrita svolítið í Visual Studio .net, kominn með 13.234 lína forrit, og nú vil ég setja icon á það. Ég geri bara eins og í Visual Basic 6.0 og allt í lagi með það, svo þegar ég er búinn að byggja (Build WindowsApplication) forritið og ætla að fara að skoða það bara eins og önnur forrit (ekki í Preview í VS .net) þá er ekki iconið sem ég valdi heldur svona eins og iconið fyrir command promtp (eða þegar maður seivar Notepad texta sem eitthvað annað en .html eða .txt) en forritið virkar af öðru leyti eins og það á að gera. Veit einhver hvað ég þarf að gera, láttu mig þá vita…