Microsoft Visual Studio Express kynnt! Jæja. Nú er Microsoft TechEd á fullu í Amsterdam og Microsoft tilkynntu í morgun nýjustu línuna sína ásamt fyrstu betunni af Visual Studio 2005. Þessi lína er Visual Studio Express pródúktin! Þarna eru komnar litlar útgáfur af eiginlega öllum hlutum Visual Studiosins og miðað við þróunina í Visual Studio 2005 held ég að liggi lítill vafi á að þarna er um að ræða sennilega besta þróunartól sem Microsoft hafa nokkurntímann látið rá sér fara. Um er að ræða 6 vörur:

Visual Basic 2005 Express
Visual C# 2005 Express
Visual C++ 2005 Express
Visual J# 2005 Express
Visual Web Dev 2005 Express
SQL Server 2005 Express

Þessar vörur verða helst ætlaðar eins-manns forriturum, nemendum, hobbýistum og fleirum í þá áttina. Þarna er um að ræða minni útgáfur af flestu því sem þarf til að forrita lítil eða meðalstór kerfi. Það sem er sérstaklega athyglisvert er að sjá að þarna er kominn SQL Server 2005 (sem gengur undir þróunarnafninu Yukon).

Ég held að það væri best fyrir fólk að sjá þetta sjálft. Og já, þið getið séð þetta sjálf því Beta útgáfurnar voru gefnar út fyrir almenning í dag :)

Þið getið nálgast þetta hérna:
http://lab.msdn.microsoft.com/express/

Ekki nóg með þetta heldur hafa Microsoft nú opnað vefsvæði þar sem almenningur getur fengið að senda inn villutilkynningar og óskir um viðbætur. Þessar óskir fara beint til þróunaraðilanna og er hægt að fylgjast ítarlega með framgangi málanna sem notendur leggja inn, bæði á vefsvæðinu og gegnum tölvupóst.
http://lab.msdn.microsoft.com/productf eedback/

Njótið.