Verið er að safna undirskriftum til að fá að kaupa bensín án vegagjalds en það yrði þá litað líkt og hráolían á vinnuvélar.
Flugvélabensín er einnig án vegagjalds en er mun dýrara í innkaupum og því er það á svipuðu verði eða dýrara en bílabensín með vegagjaldi.

Fjölmargir flugvélamótorar geta gengið á bílabensíni en þá þurfa þeir að fara í gegnum minniháttar breytingar. Þá ganga Rotax mótorarnir sem eru notaðir í fis og nokkrar flugvélar mun betur á bílabensíni og eyða minna og eru gangvissari á þannig bensíni. Þá er bílabensín ekki eins mengandi og flugvélabensín.
Hvet ykkur til að skrifa undir áskorun um þetta erindi því það væri til hagsbóta fyrir flugið ef það fengist framgengt að kaupa skattminna bílabensín fyrir flugvélarnar okkar.
Listinn er á síðunni http://www.atlantsolia.is/askorun.aspx
Takið fram flugvélar í rökstuðningi.
Látið þetta erindi endilega ganga áfram og fáið sem flesta til að skrifa.