var að fá stykkið í hendurnar (pre-order af play-asia yay!) og verð að segja að ég er þvílíkt ánægður með hann.

grafíkin og tónlistin er frábær, er ekki kominn langt þannig að ég get ekki sagt til um söguna, en byrjunin minnir mikið á neverending story myndina :D

fyrir þá sem hafa spilað fyrri leikina þá er þetta must have titill og fyrir hina, þá mæli ég hiklaust með að þeir gefi þessum séns … allavega þangað til dragon quest leikirnir fara að birtast uppúr júlí :D

Peace out!