Eitthvað finnst mér nú skrítið vera á seyði.

Það segja allir að ef ég verði stjórnandi þá muni áhugamálið lífgast upp og það kæmi grein á grein ofan. Nú er ég stjórnandi og ég hef aðeins séð eina grein! Hún er núna í lagfæringu (vonandi) svo hún komist inn… hún var nokkuð… orðljót.

En nú er Englaryk farinn og RoyalFool er nú ekki beint… eh, virkur stjórnandi… en ég vil að þið haldið áfram með greinarnar ykkar um uppáhalds “vondukallana” ykkar! Siggikorn fékk þessa afbragðs hugmynd og mjólkuðust bara tvær greinar út úr því, eftir hann sjálfan og svo mig.

Ég veit að það er lítið að tala um í augnablikinu, langt í næsta leik/mynd og langt síðan að seinasti leikur/mynd kom, en það er vel hægt að skrifa um “vondakallinn” sinn.

Skellum inn nokkrum greinum núna í febrúar! Og ef þið eruð snögg þá janúar!