Já vinur minn keypti þennan leik í gær og þótti mér þá við hæfi að kíkja yfir til hans og skoða gripinn.
Ef ég væri spurður hvað kæmi fyrst í huga eftir hálftíma spilun þá myndi ég væntanlega segja GIRL-POWAHH. Ég viðurkenni að ég hafi ekki kynnt mér leikinn mikið enn vá hvað þessi leikur er stílaður mikið á stelpur.. Er þetta einhver tilraun til að fá stelpur inní final fantasy leikina eða?
Ég þekki eiginlega enga stelpu sem spilar tölvuleiki enn hvað þá final fantasy. Veit reyndar um einn notanda hérna á huga sem hefur áhuga á leikjunum og er stelpa.

Ég veit ekki kannski er þetta öðruvísi útí ameríku eða japan dunno.

Enn hehe ég er hættur þessu tuði mér líst alveg sæmilega á þennan leik og það getur vel verið að marr kíkji út í skífu og fjárfesti eitt stykki eintak áður enn helginni lýkur.