Tónlistin í FF Ja, núna verð ég að játa á mig þá stóru synd að hafa aldrei prófað einn einasta Final Fantasy leik en er samt mikill fan!! Er það aðallega að þakka fólki sem ég þekki sem spilar þetta eins og það getur=) Og er bara tímaspursmál hvenær ég kemst í þann hóp sjálf!

En samt sem áður hef ég kynnt mér þessa leiki og þá sérstaklega tónlistina í þeim. Ég er mikill tónlistarunnandi og þegar hún Arasaka benti mér á síðuna http://www.ffmusiconline.com þá bara losnaði ég ekki út af henni í langan tíma!!

Þarna er nefnilega að finna samansafn af tónlistinni úr mörgum ef ekki öllum Final Fantasy leikjunum sem ég verð að segja er alger snilld. Og hún ein er nóg ástæða fyrir því að mig langar að spila þessa leiki!!

Nobuo Uematsu er maðurinn á bakvið tónlistina, það er mikið af upplýsingum um hann á síðunni þannig að ég sé ekki tilgang í að endurtaka þær hérna.

En svo kemur ein mesta snilldin við þessa síðu: Það eru píanónótur við mörg af lögunum!! Fyrir mig og aðra píanóleikara er það auðvitað ekkert nema gott=) Núna sit ég við píanóið mun lengur enn ella=)

Bara svona að láta ykkur vita af þessari snilldarsíðu!! :D
Daddy, don't ever die on a friday! It can seriously damage your health!