Halló. Þetta er fyrsta greinin mín svo það getur verið að ykkur finnist hún léleg. Ef ykkur finnst það þá er það alveg skiljanlegt.

Þegar þú kemst í airshipið í annað sinn er hægt að velja áfangastað og þegar þú talar við Cid ferðu inní menu og þar geturðu valið “Input” og þar áttu að skrifa leyniorð og þá kemstu á nýja leyniáfangastaði. Password Nr.1 er GODHAND og sá áfangastaður heitir “Mushroom Rock” og þar er kista með ofurvopninu hennar Rikku, en það heitir einmitt Godhand. Kistan opnaðist ekki hjá mér en hún á einhvern tíma að opnast.
Password Nr.2 er VICTORIOUS og sá áfangastaður heitir “Besaid Ruins 1” og þar er Targe (armour) handa Rikku sem heitir Victorious en það er ógeðslega gott en það er með þrjá eiginleika: Fireproof, thunderproof og waterproof.
Password Nr.3 er MURASAME og sá áfangastaður heitir “Besaid Ruins 2” en þar er vopn handa Auron sem heitir Murasame en það er ógeðslega gott vopn.

Og fyrir ykkur sem vita ekki hvernig maður fær secret aeonana þá ætla ég að skrifa það hér.
Yojimbo:Þegar þú ert í Calm Lands, farðu þar sem að brúin að Mt.Gagazet er og farðu hægra megin við hana, þar fyrir neðan er hellir sem heitir “Chamber of the stolen Fayth” Farðu þangað inn, í gegnum hellinn og þá berstu við Yojimbo. Svo ferðu inn í Faythið með Yunu og talarð við Yojimbo um verð fyrir þjónustur hans. Segðu fyrst 136.000, svo 216.000 og svo 216.001 og það samþykkir Yojimbo!

Anima: Farðu til Baaj temple með Airshipinu. Farðu ofaní vatnið og farðu að berjast við Geosgaeno. Dreptu hann og syntu að temple innganginum (Hann er neðansjávar) Farðu nálægt styttunum á annari hvorri hliðinni. Það er einn falinn hlutur í hverju temple og þegar þú ert kominn með alla hlutina, þá áttu að setja hlutina í stytturnar (held ég) og þá geturðu fengið Anima!

The Magus Sisters: Fangaðu allar tegundirnar af óvinum í Calm Lands og þá færðu verðlaun. Þau eru The Blossom Crown. Þú getur ekki opnað kistuna nema þú eigir Yojimbo og Anima og alla venjulegu aeonana líka. Farðu svo til Remiem temple. Dreptu Spathi og þá færðu Flower Scepter. Þegar þú ert búinn að vinna alla aeonana í Remiem Temple geturðu notað Blossom Crown og Flower Scepter til að opna hurðina í aftari hlutanum af templeinu og þá færðu The Magus Sisters!

Núna er ég að drepast í puttunum enda er ég búinn að vera að drita á takkana frekar lengi og lyklaborðið er líklega við það að springa, svo ég segi bara takk og bless!!!

Kv.Bjossi200 :)
Autobots, roll out.